Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA 021029, HAGA 120926 1, HAGA161127 og HAGA130629 1. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins. Hálfsársreikningur samstæðu Haga var birtur þann 15. október sl.
Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is
Viðhengi
- 2026-10-19 Hagar staðfesting á skilyrðum 130629 1
- 2026-10-19 Hagar staðfesting á skilyrðum 161127
- 2026-10-19 Hagar staðfesting á skilyrðum 120926 1
- 2026-10-19 Hagar staðfesting á skilyrðum 021029
