Icelandic
Birt: 2026-10-22 17:48:53 CEST
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 3. ársfjórðungs 2026

1.905 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 90,8% á fyrstu níu mánuðum ársins

Þriðji ársfjórðungur 2026

  • Hagnaður tímabilsins 767 m.kr. (3F 2025: 1.145 m.kr.)
  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 911 m.kr. (3F 2025: 936 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 472 m.kr. (3F 2025: 958 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 0,9% (3F 2025: 1,7%)
  • Samsett hlutfall 89,9% (3F 2025: 89,6%)

  Fyrstu níu mánuðir ársins 2026 og horfur

  • Hagnaður tímabilsins 1.905 m.kr. (9M 2025: 666 m.kr.)
  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 2.445 m.kr. (9M 2025: 2.447 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 963 m.kr. (9M 2025: 168 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 2,0% (9M 2025: 0,6%)
  • Samsett hlutfall 90,8% (9M 2025: 90,6%)
  • Horfur fyrir árið 2026 fyrir afkomu af vátryggingasamningum hafa verið hækkaðar og gera nú ráð fyrir afkomu á bilinu 2.700-2.900 m.kr. (í stað 1.800-2.500 m.kr.) og samsettu hlutfalli um 92% (í stað 93-95% áður). Horfur til næstu 12 mánaða eru óbreyttar og gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði á bilinu 1.800-2.500 m.kr. og samsett hlutfall um 93-95%.

Hermann Björnsson, forstjóri:
Sterkur grunnrekstur Sjóvá skilaði 1.905 m.kr í hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins og afkoma af vátryggingum var stöðug milli ára. Samsett hlutfall var sömuleiðis firnasterkt eða 90,8% og engin stórtjón á tímabilinu. Afkoma fjárfestinga var 963 m.kr. sem er undir væntingum og í takt við krefjandi markaðsaðstæður. Á þriðja ársfjórðungi var afkoma Sjóvár jákvæð um 767 m.kr og einkenndist af góðri afkomu af vátryggingastarfsemi þar sem tjónaþróun var nokkuð hagfelld og tjónakostnaður var svipaður á milli ára meðan tekjur standa nánast í stað. Þá var samsett hlutfall 89,9% á fjórðungnum.

Afkoma af fjárfestingum fyrir fjármagnsliði og skatta var 472 m.kr. á þriðja ársfjórðungi og ávöxtun eigna í stýringu 0,9% sem er verulega undir væntingum. Verðbréfamarkaðir á Íslandi hafa almennt verið afleitir á árinu. Þá hefur árið einkennst af þrálátri verðbólgu og háum raunvöxtum ofan í kólnandi efnahagsumsvif. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri afkomu að undanskildum skráðum og óskráðum hlutabréfum þar sem ávöxtun var neikvæð um 0,7% og 0,8%. Ávöxtun ríkisskuldabréfa var 0,8%, annarra skuldabréfa 2,0% og safnsins alls 0,9%.

Horfur félagsins fyrir árið 2026 eru hækkaðar og er afkoma af vátryggingastarfsemi nú áætluð á bilinu 2.700–2.900 m.kr. í stað 1.800–2.500 m.kr og samsett hlutfall um 92% í stað 93–95% áður. Þá eru horfur til næstu 12 mánaða óbreyttar og er afkoma af vátryggingastarfsemi til næstu 12 mánaða áætluð á bilinu 1.800–2.500 m.kr og samsett hlutfall 93–95%. Leiða má líkur að því að fjármagnsliðir vátryggingasamninga verði minni en horfur gerðu ráð fyrir eða um 900 m.kr. á árinu, þar sem vextir hafa hækkað frá áramótum. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni. Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu.

Á þriðja ársfjórðungi hélt Sjóvá áfram að styrkja samkeppnisstöðu sína og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini okkar og hluthafa. Nýjasta dæmið er 2,5% leiðin, þar sem við stigum fyrst fyrirtækja á íslenskum trygginga- og fjármálamarkaði markvisst inn í verðbólgubaráttuna. Við beinum aðgerðinni að ökutækjatryggingum heimila, sem eru að jafnaði ríflega helmingur tryggingakostnaðar þeirra og takmörkum verðhækkanir á ökutækjatryggingum heimila við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans til loka árs 2027. Tjón verða áfram bætt í takt við verðlagsþróun en með aðgerðinni vill Sjóvá leggja sitt af mörkum til aukins verðstöðugleika og styðja við heimilin í landinu.

Sjóvá hélt áfram að styðja við mikilvægt samfélagslegt starf. Á dögunum var undirritaður nýr fimm ára samningur við Slysavarnafélagið Landsbjörg, en Sjóvá hefur verið aðalstyrktaraðili Landsbjargar í 27 ár og tryggir björgunarsveitafólk, eignir og búnað björgunarsveita um allt land og styður þannig við mikilvægt starf þeirra við krefjandi aðstæður.

Á fjórðungnum hlaut Sjóvá viðurkenningu sem Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum 2026. Viðurkenningin byggir á úttekt á stjórnarháttum félagsins með hliðsjón af leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins og Nasdaq Iceland og endurspeglar áherslu Sjóvár á góða og vandaða stjórnarhætti.

Sjóvá hlaut jafnframt viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 en félagið er eitt þriggja fyrirtækja sem hlotið hafa viðurkenninguna árlega frá því hún var fyrst veitt árið 2019 og er jafnframt stoltur styrktaraðili verkefnisins. Jafnrétti og fjölbreytni er mikilvægur hluti af sterkri fyrirtækjamenningu og góðum rekstri. Við leggjum mikla áherslu á að starfsfólk fái jöfn tækifæri til vaxtar og framþróunar og að markvisst sé byggð upp þekking og hæfni innan félagsins. Með því skapast fjölbreyttur og öflugur hópur starfsfólks sem er tilbúinn að taka að sér aukna ábyrgð þegar tækifæri skapast. Árið 2025 komu 50% ráðninga úr hópi starfsfólks Sjóvá og hlutfallið enn hærra eða 67% þegar horft er til stjórnendaráðninga sem endurspeglar þessa markvissu uppbyggingu og frábæra mannauð sem félagið býr að.

Endurkaupaáætlun var hrint í framkvæmd 5. maí sl. og mun heildarkaupverð endurkaupanna nema að hámarki 500 m.kr. Keypt var um 0,4% af útistandandi hlutafé félagsins fyrir 189 m.kr. á þriðja ársfjórðungi. Höfum við þar með keypt um 0,7% af hlutafé félagsins fyrir 335 m.kr. frá upphafi áætlunarinnar og því 165 m.kr. eftir af áætluninni við lok ársfjórðungsins. Gott er að geta skilað virði til hluthafa þegar tilefni er til og munum við áfram leggja áherslu á hagkvæma ráðstöfun fjármuna félagsins.

Kynningarfundur 22. október kl. 16:15
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund kl. 16:15 í fundarsal félagsins á 6. hæð í Kringlunni 5 þann 22. október. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni sjova.is/afkomukynning. Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal
Ársuppgjör 2026…………………………………………….   11. febrúar 2027
Aðalfundur 2027…………………………………………….   11. mars 2027

Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna þriðja ársfjórðungs 2026.

Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is.

Viðhengi


Arshlutareikningur Sjova 30.9.2026.pdf
Frettatilkynning Sjova 3F 2026 .pdf
Fjarfestakynning Sjova 3F 2026.pdf