Icelandic
Birt: 2026-11-03 11:49:22 CET
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2027 og fimm ára áætlun 2027 - 2031

Frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2027 og fimm ára tímabilið til 2031 er lögð fram í borgarstjórn til fyrri umræðu í dag 3. nóvember 2026. 

Samantekinn fjárhagsáætlun A- og B-hluta 

Í fjárhagsáætlun ársins 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 12,9 milljarða króna og EBITDA verði 73,0 milljarðar króna. Á árunum 2028-2031 er gert ráð fyrir batnandi afkomu og vaxandi EBITDA. Útkomuspá fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir að afkoma ársins verði neikvæð um 3,4 milljarða króna. 

Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum er áætlað 16,5% árið 2027 eða 53,2 milljarðar króna og verði á milli 17% og 18,1% tímabilið 2028 til 2031. 

Gert er ráð fyrir að lok árs 2027 nemi eignir samtals 1.116 milljörðum króna og hækki um 51 milljarð króna á árinu. Þá er gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 43,5%.  

Heildarfjárfesting er áætluð 73,8 milljarðar árið 2027 og gert er ráð fyrir að heildarfjárfesting árin 2028 til 2031 nemi 295,5 milljörðum króna. Árið 2027 er gert ráð fyrir að lántaka langtímalána ársins nemi 53,2 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 24,4 milljarðar króna. 

Gert er ráð fyrir að þriggja ára jafnvægisviðmið sveitarstjórnarlaga verði jákvætt allt áætlunartímabilið og að skuldaviðmið verði 113% árið 2027 og undir 150% viðmiði sveitarstjórnarlaga út áætlunartímabilið. 

Fjárhagsáætlun A-hluta 

Fjárhagsáætlun A-hluta gerir ráð fyrir 2,8 milljarða króna afgangi árið 2027. Í fimm ára áætlun er gert ráð fyrir að hagnaður A-hluta fari stigvaxandi og nemi 16,8 milljörðum árið 2031.  

Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum nemi 8% árið 2027. Í fimm ára áætlun er gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum verði milli 9,3%-11,3% árin 2028-2031.  

Gert er ráð fyrir að eignir A-hluta nemi 333,2 milljörðum króna í lok árs 2027 og að eiginfjárhlutfall nemi 25%. Hreinar skuldir sem hlutfall af tekjum eru áætlaðar 91% árið 2027 og fara lækkandi á áætlunartímabilinu. 

Heildarfjárfesting A-hluta er áætluð 23,6 milljarðar árið 2027 og gert er ráð fyrir að stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum skv. lögum nr. 52/2016 og til B-hluta fyrirtækja og hlutdeildarfélaga nemi 2,6 milljörðum króna. Árið 2027 er gert ráð fyrir að langtímalántaka ársins nemi 16,0 milljörðum króna, skammtímalántaka nemi 2,5 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 10,4 milljarður króna. 

Fjármálastefna og fjárhagsleg staða Reykjavíkurborgar 

Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar sinna umfangsmiklum þjónustu- og innviðaverkefnum. Á næsta ári er áætlað að eignir A- og B-hluta borgarinnar samkvæmt efnahagsreikningi verði komnar yfir 1.100 milljarða króna með 485 milljarða króna í eigið fé. Það sýnir sterka stöðu borgarinnar og B-hluta fyrirtækja að áætlað veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum er yfir 16% og stendur þannig undir fjárfestingastigi og skuldsetningu fjárfrekra innviðaverkefna. 

Fjármálastjórn A-hluta tekur mið af endurskoðaðri fjármálastefnu Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 2027 til 2031. Sérstök áhersla er lögð á innleiðingu virkrar áhættustýringar, arðsemis- og ábatagreininga vegna fjárfestinga, árangursstjórnun og virkt útgjaldaeftirlit. Framtíðarsýn stefnunnar er að fjármálastjórn borgarinnar tryggi sjálfbærni og stöðugleika til lengri tíma. Með ábyrgri forgangsröðun og hagkvæmri nýtingu fjármuna skili borgarsjóður rekstrarafgangi og standi undir skuldum og skuldbindingum á hverjum tíma. Þrjú meginmarkmið styðja við hana: fjárhagsleg sjálfbærni og stöðugleiki, árangursdrifin og hagkvæm nýting fjármuna, og skýr forgangsröðun og markvissar fjárfestingar. Í fjármálastefnunni eru sett markmið fyrir A-hluta sem taka til helstu fjárhagslegra þátta borgarsjóðs þ.e. reksturs, efnahags og sjóðstreymis.  

Gert er ráð fyrir að öll markmið fjármálastefnunnar verði uppfyllt á áætlunartímabilinu. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum endurspeglar sterkan grunnrekstur, handbært fé í árslok er yfir markmiðum og skuldaviðmið með því lægsta á höfuðborgarsvæðinu.  

Ítarlega umfjöllun er að finna í hjálögðum gögnum um frumvarpið og meginniðurstöður þess. 

Reykjavík, 3. nóvember 2026. 

 

Nánari upplýsingar veitir  

Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs 

halldora.karadottir@reykjavik.is 

Frumvarp-a-fjarhagsatlun-og-fimm-ara-atlun-Reykjavikurborgar-2027-2031.pdf
Greinarger-fagsvia-og-b-hluta-me-fjarhagsatlun-2027.pdf
Greinarger-Fjarmala--og-ahttustyringarsvis-me-fjarhagsatlun-2027-2031.pdf