Icelandic
Birt: 2026-11-19 16:30:47 CET
Síldarvinnslan hf - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Síldarvinnslan: Uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánuði ársins 2026

  • Veiðar og vinnsla á makríl gengu vel.
  • Góð kolmunnaveiði í íslenskum sjó.
  • Síldveiðar gengu vel í september.
  • Sala á öllum afurðum hefur gengið vel á fjórðungnum.
  • Frystitogarinn Blængur fiskaði vel og afurðaverð er hátt.
  • Sumarstopp bolfiskskipa og -vinnslna á fjórðungnum.
  • Landvinnslan í Grindavík fór vel af stað eftir sumarhlé.
  • Góð makrílvertíð hjá Polar Pelagic.
  • Áfram áskoranir í fiskeldinu.
  • Viðgerð á Barða gengur vel, verður klár til veiða í desember.
  • Heilt yfir gott uppgjör.


Helstu niðurstöður úr fjárhagsuppgjöri tímabilsins 

  • Hagnaður tímabilsins á þriðja ársfjórðungi nam 25,8 m EUR og 72,8 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins.
  • Rekstrartekjur námu 85,3 m EUR á þriðja ársfjórðungi og 277,2 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins.
  • EBITDA var 32,0 m EUR eða 37,6% á þriðja ársfjórðungi og 105,3 m EUR eða 38,0% á fyrstu níu mánuðum ársins.
  • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 979,5 m EUR og eiginfjárhlutfall var 69,9%.

Rekstur 

Tekjur á þriðja ársfjórðungi námu 85,3 m EUR samanborið við 110,9 m EUR á þriðja ársfjórðungi 2025. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru 277,2 m EUR samanborið við 256,8 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Rekstrartekjur drógust saman um 25,6 m EUR á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil árið 2025, eða um 23,1%. Samdráttur í tekjum er fyrst og fremst vegna minni veiði.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á þriðja ársfjórðungi nam 32,0 m EUR eða 37,6% af rekstrartekjum, en á þriðja ársfjórðungi 2025 var EBITDA 39,3 m EUR eða 35,5% af rekstrartekjum. EBITDA minnkar því um 7,3 m EUR á milli tímabila. Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 var EBITDA 105,3 m EUR eða 38,0%. Til samanburðar var hún 74,2 m EUR eða 28,9% á fyrstu níu mánuðum ársins 2025.

Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 31,6 m EUR samanborið við hagnað uppá 34,8 m EUR á þriðja fjórðungi 2025. Á fyrstu níu mánuðum ársins var hagnaður fyrir tekjuskatt 92,3 m EUR samanborið við 50,9 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins 2025. Tekjuskattur var 5,8 m EUR og hagnaður þriðja ársfjórðungs 2026 nam því 25,8 m EUR samanborið við 28,5 m EUR hagnað á þriðja fjórðungi ársins 2025. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 var 72,8 m EUR samanborið við 40,0 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins 2025.

Efnahagur 

Heildareignir námu 979,5 m EUR í lok september 2026. Þar af voru fastafjármunir 769,6 m EUR og veltufjármunir 209,9 m EUR. Í lok árs 2025 námu heildareignir 945,4 m EUR og þar af voru fastafjármunir 769,3 m EUR og veltufjármunir 176,1 m EUR.

Fjárhagsstaða félagsins er sterk og nam eigið fé 684,3 m EUR í lok september 2026 og var eiginfjárhlutfall 69,9%. Samanborið nam eigið fé í lok árs 2025 alls 625,0 m EUR og eiginfjárhlutfallið 66,1%.

Heildarskuldir og -skuldbindingar félagsins voru 295,2 m EUR og lækkuðu um 25,2 m EUR frá áramótum. Vaxtaberandi skuldir voru 136,8 m EUR í lok tímabilsins og lækkuðu um 57,7 m EUR frá áramótum.

Sjóðstreymi 

Handbært fé frá rekstri nam 74,2 m EUR á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 en var 42,5 m EUR á sama tímabili árið 2025. Fjárfestingahreyfingar voru neikvæðar um 2,3 m EUR og fjármögnunarhreyfingar neikvæðar um 81,5 m EUR. Handbært fé í lok tímabilsins nam 73,8 m EUR. 

Meginniðurstöður í íslenskum krónum á fyrsta ársfjórðungi 2026

Séu niðurstöður rekstrarreiknings ársfjórðungsins og fyrstu níu mánaða ársins 2026 reiknaðar í íslenskum krónum á meðalgengi tímabilsins (1 EUR=143,37 kr), námu rekstrartekjur ársfjórðungsins 12,2 milljörðum, EBITDA 4,6 milljörðum og hagnaður 3,7 milljörðum. Á fyrstu níu mánuðum ársins námu rekstrartekjur 39,7 milljarði, EBITDA 15,1 milljörðum og hagnaður 10,4 milljörðum. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar í íslenskum krónum á gengi 30. september 2026 (1 EUR=137,0 kr), námu eignir samtals 134,2 milljörðum, skuldir 40,5 milljörðum og eigið fé 93,7 milljörðum. 

Samþykkt árshlutareiknings 

Árshlutauppgjör fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026 var samþykkt á stjórnarfundi Síldarvinnslunnar þann 19. nóvember 2026. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS - International Financial Reporting Standards). 

Kynningarfundur 19. nóvember 2026

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn á vefstreymi fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi klukkan 16:30. Streymið verður aðgengilegt á vefsíðu Síldarvinnslunnar https://svn.is/fjarfestar/streymi/. Streymið verður einnig aðgengilegt á streymisrás Síldarvinnslunnar á YouTube.  https://www.youtube.com/channel/UC-7V1TcKj92J5Mc9OMMcFZQ/videos 

Þá verður hægt að senda spurningar á netfangið fjarfestir@svn.is 

Frá forstjóra 

Rekstur Síldarvinnslunnar gekk vel á þriðja ársfjórðungi þrátt fyrir minna veiði- og framleiðslumagn en á sama tímabili í fyrra. Mestur var samdrátturinn í veiðum og vinnslu á makríl, en veiðiheimildir í tegundinni drógust saman um 70% milli ára. Töluverð hækkun afurðaverðs vó að hluta upp á móti samdrættinum. Afkoma fyrstu níu mánaða ársins er umtalsvert betri en á sama tímabili í fyrra. Það skýrist af háu afurðaverði og góðri loðnuvertíð, en nánast engin loðna var veidd árið 2025. Við höfum þegar birt uppfærða afkomuspá þar sem reksturinn hefur gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Makrílvertíð hófst eftir verslunarmannahelgi og lauk í byrjun september. Verð á makrílafurðum er mjög hátt og eftirspurn mikil. Uppsjávarskipin stunduðu einnig kolmunnaveiðar í Hvalbakshallinu og Rósagarðinum í júlí og ágúst. Hluti aflans var frystur til manneldis í fiskiðjuverinu. Verð á fiskimjöli og lýsi er einnig hátt. Síldarvertíð hófst fyrir Austurlandi í september og þurfti að hafa meira fyrir veiðunum en undanfarin ár. Nú er síldavertíð lokið og undirbúningur fyrir loðnuvertíð hafinn.

Afli frystitogarans Blængs jókst á fjórðungnum milli ára, en skipið var í viðhaldsslipp í september í fyrra. Verð á sjófrystum afurðum hefur haldist gott og eftirspurn verið góð. Afli línuskipanna jókst lítillega milli ára, en samdráttur varð í afla togaranna, enda hefur þeim fækkað um einn frá fyrra ári. Fimm vikna sumarhlé var í landvinnslunni í Grindavík. Eftirspurn eftir saltfiski er mikil í Suður-Evrópu og er framleiðslan í haust er miðuð að sölu fyrir jólavertíðina.

Áskoranir hafa verið í rekstri hlutdeildarfélagsins Arctic Fish það sem af er ári, en þar höfum við verið að sjá jákvæð teikn þegar kemur að kostnaðarhliðinni. Verð á laxi hafa verið lág framan af ári, nú á haustmánuðum höfum við verið að sjá verðhækkanir. Það eru vonbrigði að frumvarp til nýrra laga um lagareldi fái ekki meiri forgang, en við bindum vonir við að Alþingi taki á því máli á næstu mánuðum. Samkeppnishæfni og framtíðaruppbygging þessarar mikilvægu atvinnugreinar á allt undir að umgjörðin verði löguð og styrkt.

Rekstur Polar Pelagic var góður á fjórðungnum og gekk makrílvertíðin vel.

Nú hefur verið gefin út ráðgjöf fyrir alla uppsjávarstofna árið 2027. Á heildina litið eru horfur góðar, en ráðgjöfin gerir ráð fyrir auknum veiðum á síld, kolmunna og makríl. Óvissa er þó um samninga milli Íslands og Færeyja fyrir næsta ár. Kolmunnaveiði undanfarinna ára hefur að mestu farið fram í færeyskum sjó. Góð kolmunnaveiði í íslenskri lögsögu síðastliðið sumar er hins vegar jákvæð og styrkir stöðu okkar gagnvart þeirri óvissu. Við getum veitt mun meira í íslenskum sjó, auk þess sem við þurfum að vera opin fyrir því að skoða fiskveiðisamninga við aðrar þjóðir.

Það voru vonbrigði að ráðgjöf fyrir komandi loðnuvertíð skyldi lækka verulega í kjölfar haustleiðangursins. Hafís truflaði leiðangurinn að hluta og vonumst við til að niðurstöður vetrarmælinga í janúar gefi tilefni til aukinnar ráðgjafar. Það er þó jákvætt að fyrir liggi veiðiheimildir fyrir komandi vertíð, enda höfum við of oft á undanförnum árum staðið frammi fyrir engum loðnukvóta í upphafi vetrar. Miðað við ungloðnumælingar og fyrri ráðgjöf teljum við fulla ástæðu til bjartsýni þegar kemur að loðnunni.

Síldarvinnslan tilkynnti nýlega að kauptilboð félagsins í nýjan frystitogara hefði verið samþykkt. Skipið mun leysa af hólmi Blæng, sem er orðinn 53 ára gamall. Nýi togarinn er í smíðum í Tyrklandi og verður að óbreyttu tekinn í rekstur á næsta ári. Endurnýjunin er nauðsynlegt skref til að viðhalda samkeppnishæfni félagsins.

Síldarvinnslan stendur sterk og horfur eru á að árið 2026 verði eitt besta rekstrarár félagsins. Horfur um veiðiheimildir á næsta ári gefa tilefni til bjartsýni og vonumst við til að aðstæður á erlendum mörkuðum verði áfram hagfelldar íslenskum sjávarafurðum.

Fjárhagsdagatal 

Ársuppgjör 2026 – 4. mars 2027
Aðalfundur 2027 – 18. mars 2027
1. ársfjórðungur 2027 – 27. maí 2027 
2. ársfjórðungur 2027 – 26. ágúst 2027 
3. ársfjórðungur 2027 – 18. nóvember 2027
Ársuppgjör 2027 – 2. mars 2028

Nánari upplýsingar 

Gunnþór B. Ingvason, forstjóri 

Viðhengi


SVN samsta - arsreikningur Q3 2026.pdf
Sildarvinnslan hf.-Kynning-3F2026.pdf