Icelandic
Birt: 2026-11-27 17:16:16 CET
Ásar hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Ásar hf. - Undirritun leigusamnings um nýjar höfuðstöðvar

Ásar hf. hafa undirritað leigusamning við Arnarstræti ehf., systurfélag Reykjastrætis fasteignafélags, um nýjar höfuðstöðvar samstæðunnar í Arnarlandi í Garðabæ.

Með flutningunum sameinast skrifstofustarfsemi samstæðunnar á höfuðborgarsvæðinu undir einu þaki. Í dag er starfsemin á fjórum stöðum, í Ármúla, Katrínartúni, Skútuvogi og Askalind, í samtals um 12.550 fermetrum.

Skrifstofurými í Arnarlandi verður rúmlega 6.000 fermetrar á fimm hæðum í miðjuturni nýbyggingar á reitnum, auk rýma í kjallara og á jarðhæð hússins. Fasteignafélagið Reykjastræti mun sjá um rekstur fasteignarinnar og ÞG verktakar um verklegar framkvæmdir. Húsnæðið er hannað fyrir sveigjanlega vinnuaðstöðu og nýtist fyrir um 650 starfsmenn, sem gefur svigrúm fyrir áframhaldandi vöxt samstæðunnar.

Ósar – lífæð heilbrigðis hf. hafa samið um leigu á norðurturni byggingarinnar, en félögin munu í sameiningu leigja og reka jarðhæð hússins, þar sem verða m.a. mötuneyti, kaffihús og aðstaða fyrir fundi, fræðslu og viðburði. Markmiðið er að í Arnarlandi verði til einstakt vinnuumhverfi félaga á sviði stafrænnar þjónustu og velferðar í vönduðu, nútímalegu húsnæði fyrir miðju höfuðborgarsvæðisins.

Áætlað er að húsnæðið verði afhent í tveimur áföngum að vori og sumri 2029. Leigusamningur er til 20 ára, með framlengingarheimildum. Núverandi leigusamningar félaga í samstæðunni renna út í aðdraganda þess að nýjar höfuðstöðvar verða afhentar.

Samningurinn hefur hvorki áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins 2026 né afkomuspá félagsins. Leigugreiðslur hefjast við afhendingu árið 2029. Þá verða nýtingarréttur og leiguskuldbinding færð í efnahagsreikning samstæðunnar í samræmi við IFRS 16, og er núvirði skuldbindingarinnar áætlað á bilinu 6.800 – 7.800 m.kr.

„Það er lykilatriði í áframhaldandi sókn samstæðunnar að laða til okkar og halda í framúrskarandi fólk. Þar skiptir góð vinnuaðstaða miklu máli. Með flutningunum náum við samlegð í húsnæðismálum og sameinumst í glæsilegu og nútímalegu húsnæði sem getur þróast í takt við breytta starfshætti og nýja tækni,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása.