English Icelandic
Birt: 2024-09-25 20:52:50 CEST
Orkuveita Reykjavíkur
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Orkuveitan | Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitunnar (Orkuveita Reykjavíkur) lauk í dag, 25. september 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR0280845 GB og OR180255 GB ásamt nýjum grænum óverðtryggðum skuldabréfaflokki OR031033 GB. Heildartilboð námu 7.110 m.kr. að nafnvirði.

OR031033 GB ber fasta 8,30% óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 3. október 2033. Ekki hafa verið gefin út bréf í flokknum áður.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 4.850 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 8,23% - 8,48%. Tilboðum að fjárhæð 4.630 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 8,44%.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur að 13 árum liðnum. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 2.050 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.740 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,85% - 4,00%. Tilboðum að fjárhæð 1.380 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,96%.

OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 35.246 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 520 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,37% - 3,47%. Tilboðum að fjárhæð 520 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,47%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.

Nánari upplýsingar:

Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@or.is

Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is