English Icelandic
Birt: 2022-07-07 17:47:38 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

 

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Níu tilboð að fjárhæð 1.480m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 6,78%-6,85%. Tilboðum að fjárhæð 1.180m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,80%. Jafnframt mun bankinn gefa út 10.000 m.kr. að nafnverði til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 51.740 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Níu tilboð að fjárhæð 2.280 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 6,50%-6,56%. Tilboðum að fjárhæð 1.700m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,53%. Heildarstærð flokksins verður 9.260 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 14. júlí 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.