Fossar fjárfestingarbanki hf.: Niðurstaða útboðs víxla 22. maí 2024Fossar fjárfestingarbanki hf. lauk víxlaútboði í dag. Bankanum bárust tilboð að nafnverði 2.040 m.kr. á bilinu 10,15% - 10,36% flötum vöxtum, þar sem vegnir meðalvextir voru 10,27%. Samþykkt tilboð í 6 mánaða víxlaflokkinn FOS 24 1129 voru samtals 1.700 m.kr. á 10,29% flötum vöxtum. Umsjón með útboðinu höfðu markaðsviðskipti Fossa fjárfestingarbanka. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 30. maí 2024. Nánari upplýsingar: Ernir Jónsson Fossar fjárfestingarbanki Sími: 832-4002 Netfang: ernir.jonsson@fossar.is Ásgrímur Gunnarsson Fossar fjárfestingarbanki Sími: 832-4040 Netfang: asgrimur.gunnarsson@fossar.is
|