Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 6.640 m.kr.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 5.900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,72%. Heildartilboð voru 6.640 m.kr. á bilinu 3,66% til 3,76%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Engin tilboð bárust í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27.
Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CBI 24 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 99,9401 (ávöxtunarkrafa 3,90%). Bankinn kaupir til baka 330 m.kr. að nafnvirði í flokknum.
Frekari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Bjarney Anna Bjarnadóttir, ir@islandsbanki.is
Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is
Þessi tilkynning er birt af Íslandsbanka hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka hf., í samræmi við upplýsingaskyldu bankans samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.