Icelandic
Birt: 2023-10-18 11:30:02 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVKG 48 1 og RVKNG 40 1 í dag

Í dag, miðvikudaginn 18. október, efnir Reykjavíkurborg í samræmi við útgáfuáætlun 2023 til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVKG 48 1 og RVKNG 40 1. Heimild til lántöku á árinu 2023 er 21.000 m.kr. Heildarfjármögnun ársins, fyrir þetta útboð, nemur 18.909 m.kr.

RVKG 48 1 er verðtryggður grænn skuldabréfaflokkur sem ber fasta 2,385% verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2048. Heildarstærð RVKG 48 1 fyrir þetta útboð nemur alls 13.190 m.kr. að nafnvirði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr.

RVKNG 40 1 er óverðtryggður grænn skuldabréfaflokkur sem ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir árlega með lokagjalddaga 21. ágúst 2040. Heildarstærð RVKNG 40 1 fyrir þetta útboð nemur alls 9.130 m.kr. að nafnvirði.

Nánari upplýsingar um græn skuldabréf Reykjavíkurborgar má nálgast hér

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 24. október nk.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboðum skal skilað inn á netfangið fjarstyring@reykjavik.is fyrir kl. 16:00 í dag.

Nánari upplýsingar veitir:


Bjarki Rafn Eiríksson
Fjárstýringar- og innheimtuskrifstofa
Netfang: Bjarki.Rafn.Eiriksson@reykjavik.is