Icelandic
Birt: 2021-11-23 18:20:00 CET
Eik fasteignafélag hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Breytingar á arðgreiðslustefnu

Stjórn Eikar fasteignafélags hf. hefur ákveðið að breyta arðgreiðslustefnu félagsins, sem hljóðar nú svo:

„Stefna stjórnar er að greiða árlega út arð sem nemur allt að 50% af handbæru fé frá rekstri ársins að frádreginni þeirri fjárhæð sem nýtt verður í kaup á eigin bréfum fram að boðun næsta aðalfundar. Við mótun tillögu um arðgreiðslu skal litið til fjárhagsstöðu félagsins, fyrirætlana um fjárfestingar og stöðu efnahagsmála.“

Arðgreiðslustefnan hljóðaði fyrir breytingar svo:

„Stefna stjórnar er að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri ársins að frádreginni þeirri fjárhæð sem nýtt verður í endurkaup fram að boðun næsta aðalfundar.“

Nánari upplýsingar veitir:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200