Alma íbúðafélag hf. („ALMA“) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 19. maí næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í flokknum AL040629 sem gefin verða út undir útgáfuramma félagsins og veðtryggð samkvæmt almennu tryggingarfyrirkomulagi.
Skuldabréfaflokkurinn AL040629 er 3 ára veðtryggður, með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 1 mánaða REIBOR vöxtum að viðbættu vaxtaálagi sem ræðst í útboði. Lokagjalddagi flokksins er 4. júní 2029. Skuldabréfin verða gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum.
Fyrirkomulag útboðsins er „hollensk“ uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. ALMA áskilur sér rétt til að taka eða hafna hvaða tilboði sem er í heild eða að hluta. Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða þann 20. maí 2026.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 27. maí 2026 og sótt verður um töku skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið. Kauphöll mun tilkynna um fyrsta dag viðskipta með eins dags fyrirvara.
Eigendum AL210926 býðst að greiða með bréfum í flokknum á fyrir fram ákveðnu hreinu verði 100,12 gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð og kröfu skal skilað til Íslandsbanka hf. fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 19. maí 2026 á netfangið vbm@islandsbanki.is.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni. Grunnlýsing og viðauki við grunnlýsinguna hafa verið birt í tengslum við útgáfuramma félagsins. Grunnlýsinguna, viðauka við grunnlýsinguna og önnur skjöl sem tengjast skuldabréfunum og útgáfu þeirra má nálgast á vefsíðu félagsins. Tilkynningar sem ALMA hefur birt í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu https://www.al.is/company/investors/
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.
Ingólfur Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags hf., ingolfur@al.is.