English Icelandic
Birt: 2023-03-26 21:45:00 CEST
Origo hf.
Fyrirtækjafréttir

AFSKRÁNING OG ALMENNT TILBOÐ TIL HLUTHAFA ORIGO HF.

ALMENNT

Origo hf., kt. 530292-2079, Borgartúni 37, 105 Reykjavík („Origo“ eða „félagið“), leggur hér með fram almennt tilboð til hluthafa í félaginu, samkvæmt hlutaskrá félagsins (uppgerð viðskipti) í lok dags þann 24. mars 2023, um kaup á allt að 25.000 hlutum gagnvart hverjum hluthafa.

Tilboðið er gert samkvæmt heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum með almennu tilboði til hluthafa sem samþykkt var á aðalfundi þess sem haldinn var þann 21. mars sl.

Félagið hefur óskað þess við Nasdaq á Íslandi að hlutabréf félagsins verði tekin úr viðskiptum á Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi og væntir niðurstöðu Nasdaq á Íslandi á næstu dögum. Tilgangur tilboðsins er að gera hluthöfum félagsins kleift að selja hluti í félaginu vegna hinnar fyrirhuguðu afskráningar þar sem afskráning hlutabréfa í félaginu mun leiða til minni seljanleika þeirra.

TILBOÐSVERÐ

Tilboðsverð er kr. 87 per hlut, kvaða- og veðbandalausan. Tilboðsverðið er það verð sem boðið var í valfrjálsu tilboði AU 22 ehf., aðlagað vegna arðgreiðslu að fjárhæð kr. 2.000.000.000, sem ákveðin var á aðalfundi félagsins þann 21. mars sl.

Uppgjör viðskiptanna fer fram eigi síðar en þann 18. apríl 2023.

TÍMABIL TILBOÐS

Tilboðið tekur gildi kl. 9:00 þann 27. mars 2023 og gildistíma þess lýkur kl. 17:00 þann 11. apríl 2023.

SAMÞYKKI TILBOÐSINS

Þeir hluthafar sem vilja samþykkja tilboðið eru beðnir um að senda tölvupóst til fjarfestatengsl@origo.is og ef hluthafar eru á hlutaskrá félagsins þann 24. mars 2023, fá þeir afhent samþykktareyðublað. Með því að skila rétt útfylltu eyðublaði fyrir k. 17:00 þann 11. apríl nk., hafa hluthafar samþykkt tilboð félagsins. Samþykki á tilboðinu er bindandi og óafturkræft. Þeir hluthafar sem hafa samþykkt tilboðið mega ekki selja eða framselja, hvorki beint eða óbeint, hluti sína í Origo, sem seldir eru félaginu samkvæmt tilboðinu, til þriðja aðila.

FREKARI UPPLÝSINGAR

Óski hluthafar félagsins eftir frekari upplýsingum, er þeim bent á að hafa samband við fjarfestatengsl@origo.is.


AFSKRANING OG ALMENNT TILBO TIL HLUTHAFA ORIGO HF..pdf