English Icelandic
Birt: 2026-05-12 18:14:22 CEST
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Átta tilboð að fjárhæð 1.620 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,89%-7,98%. Tilboðum að fjárhæð 1.400 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,95%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 51.380 m. kr., þar af eru 35.420 m.kr. útistandandi og 15.960 m.kr. gefin út til eigin nota.

Fjögur tilboð að fjárhæð 1.120 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 31 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,33%-3,37%. Tilboðum að fjárhæð 640 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,34%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 19.980 m. kr., þar af eru 19.020 m.kr. útistandandi og 960 m.kr. gefin út til eigin nota.

Áætlaður uppgjörsdagur er 19. maí 2026.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.

Þessi tilkynning er birt af Landsbankanum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Hreiðari Bjarnasyni, framkvæmdastjóra fjármála hjá Landsbankanum hf., í samræmi við upplýsingaskyldu Landsbankans hf. samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.