English Icelandic
Birt: 2024-01-11 16:39:08 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Ellefu tilboð að fjárhæð 1.740 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,90%-8,00%. Tilboðum að fjárhæð 1.280 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,95%. Heildarstærð flokksins verður 11.000 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

23 tilboð að fjárhæð 5.420 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,39%-3,60%. Tilboðum að fjárhæð 4.780 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,52%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m.kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 5.740 m. kr.

Uppgjörsdagur er 18. janúar 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.