English Icelandic
Birt: 2026-01-07 18:05:00 CET
Arion banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 3.680 m.kr.

Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 16 tilboð að fjárhæð 4.380 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,12 – 3,21%. Tilboð að nafnvirði 3.680 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,16%. Heildarstærð flokksins verður 12.740 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 14. janúar 2026.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Arion banki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf