English Icelandic
Birt: 2022-11-17 16:54:09 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Fimmtán tilboð að fjárhæð 2.000 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 7,06%-7,15%. Tilboðum að fjárhæð 400 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,06%. Heildarstærð flokksins verður 54.560 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 1.820 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,02%-7,12%. Tilboðum að fjárhæð 1.380m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7,06%. Heildarstærð flokksins verður 12.840 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 24. nóvember 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.