Icelandic
Birt: 2026-06-18 15:00:02 CEST
Reykjavíkurborg - Árshlutareikningar

Reykjavíkurborg: Rekstraruppgjör A-hluta Reykjavíkurborgar janúar til mars 2026

Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar leggur nú fram óendurskoðað rekstraruppgjör A-hluta fyrir tímabilið janúar til mars 2026. Uppgjörið er gert í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga og reglugerð um bókhald, fjármál og ársreikninga sveitarfélaga.

Rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir tímabilið janúar til mars 2026 var neikvæð um 4.591 m.kr. sem var 844 m.kr. betri niðurstaða en fyrir ári síðan en 1.578 m.kr. lakari niðurstaða en áætlað var. Helstu frávik voru í nettó fjármagnsgjöldum sem voru 1.527 m.kr. yfir áætlun og rekja má til hærri verðbólgu á tímabilinu en gert var ráð fyrir í áætlun.

Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var jákvæð um 2.167 m.kr. sem var um 2.759 m.kr. betri niðurstaða en á sama tímabili 2025. EBITDA var um 82 m.kr. lægri en gert var ráð fyrir í áætlun.

Rekstrartekjur hækkuðu milli ára um 3.047 m.kr. Skatttekjur ásamt tekjum frá Jöfnunarsjóði jukust um 3.144 m.kr., þar af jókst staðgreiðsla útsvars um 2.826 m.kr. Þá voru framlög frá Jöfnunarsjóði 810 m.kr. hærri en fyrsta ársfjórðungi 2025. Sala byggingarréttar var 114 m.kr. lægri í ár saman borið við sama tímabil árið 2025 en söluhagnaður eigna var 512 m.kr. hærri en á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Launakostnaður hækkaði um 1.156 m.kr. sem einkum má rekja til launahækkana samkvæmt kjarasamningum. Gjaldfærsla lífeyrisskuldbinding var 2.159 m.kr. lægri en á sama tímabili 2025 en gjaldfærsla tímabilsins tekur mið af áætlun. Á sama tíma í fyrra var gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga aukin um 2,5 ma.kr. vegna nýrra kjarasamninga á tímabilinu. Annar rekstrarkostnaður jókst um 1.292 m.kr. á milli ára og afskriftir um 161 m.kr. Nettó fjármagnsgjöld voru hærri í ár um 1.754 m.kr. sem einkum má rekja til hærri verðbólgu á tímabilinu. Veltufé frá rekstri var jákvætt um 622 m.kr. og veltufé frá rekstri í hlutfalli af tekjum var jákvætt um 1,2% á fyrsta ársfjórðungi 2026.



Rekstraruppgjörið var lagt fram í borgarráði í dag í samræmi við tímaáætlun um framlagningu á mánaðar- og árshlutauppgjörum ársins 2026.



Reykjavík, 18. júní 2026



Nánari upplýsingar veitir

Halldóra Káradóttir, sviðstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar

halldora.karadottir@reykjavik.is

Rekstraruppgjor-Reykjavikurborgar-A-hluti-januar---mars-2026.pdf