Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.000 m.kr.
Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 640 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,94%. Heildartilboð voru 640 m.kr. á bilinu 2,88% til 2,94%.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 40 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,40%. Heildartilboð voru 40m.kr. á kröfunni REIBOR + 0,40%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans.
Tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 1.320 m.kr. á bilinu 9,26% til 9,38%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.