Samkeppniseftirlitið tilkynnti Símanum hf. í dag að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupum Símans hf. á Greiðslumiðlun Íslands ehf. sem Síminn hf. tilkynnti opinberlega um þann 23. október sl. Með hliðsjón af fyrirliggjandi gögnum taldi Samkeppniseftirlitið ekki tilefni til íhlutunar vegna kaupanna og hefur þar með lokið meðferð málsins.
Í samræmi við kaupsamning má reikna með að framkvæmd viðskiptanna eigi sér stað á næstu vikum, að öðrum skilyrðum samningsins uppfylltum. Síminn hf. mun upplýsa þegar viðskiptin hafa verið frágengin.
Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans hf. - maria@siminn.is
