Icelandic
Birt: 2026-04-28 13:36:14 CEST
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg: Kynningarfundur fyrir markaðsaðila vegna ársuppgjörs 2025

Boðað er til opins kynningarfundar fyrir markaðsaðila miðvikudaginn 29. apríl kl. 8:30 vegna ársuppgjörs Reykjavíkurborgar 2025. Fundurinn fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur, 1. hæð fundarherbergi Pollurinn.

Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2025 var lagður fyrir borgarráð í gær 27. apríl og vísað til fyrri umræðu í borgarstjórn í dag 28. apríl.

Hér með er boðað til opins kynningarfundar fyrir markaðsaðila miðvikudaginn 29. apríl kl. 8:30. Fundurinn fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur, 1. hæð fundarherbergi Pollurinn.

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri og Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs munu fara yfir helstu atriði í uppgjöri ársins ásamt því að svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir,

Halldóra Káradóttir sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs

halldora.karadottir@reykjavik.is