Helstu atriði í afkomu ársins 2021
Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs
VILHELM MÁR ÞORSTEINSSON, FORSTJÓRI
„Ég er mjög ánægður með frammistöðuna á fjórða ársfjórðungi og árinu í heild en við skilum nú metafkomu. Framlag starfsmanna var framúrskarandi og okkur tókst að halda uppi háu þjónustustigi í mjög krefjandi rekstrarumhverfi. Fjárhagslega héldum við áfram að byggja á samþættingu og hagræðingu síðustu ára, þeim aðlögunum sem gerðar hafa verið á rekstrinum ásamt virkri tekjustýringu ásamt hagstæðu ytra umhverfi, sérstaklega á alþjóðaflutningsmörkuðum. EBITDA var sterk á árinu og nam 114,3 milljónum evra og hefur aðlagaður hagnaður aldrei verið hærri en hann nam 50,6 milljónum evra.
Hlutfall tekna sem eiga uppruna sinn utan Íslands hefur farið vaxandi og hefur í raun aldrei verið hærri en það var á fjórða ársfjórðungi eða 61%. Alþjóðlega flutningsmiðlunin okkar skilaði sterkri niðurstöðu, sérstaklega í Asíu, á markaði sem einkenndist af mjög háum alþjóðaflutningsverðum og skorðum á afkastagetu meirihluta ársins. Þessi aukna hlutdeild og góð frammistaða á alþjóðasviðinu okkar hefur dregið úr hefðbundinni árstíðasveiflu í afkomu.
Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta afkomuna í áætlunarsiglingum sem er nú að skila sér. Magn í útflutningi frá Íslandi var sterkt og við hlökkum til að veita viðskiptavinum okkar í sjávarútvegi flutningalausnir á yfirstandandi loðnuvertíð. Magn í Trans-Atlantic þjónustunni okkar jókst verulega á árinu og eftirspurn eftir flutningi vestur um haf til Norður Ameríku er áfram mikil. Magn til og frá Færeyjum jókst eftir því sem leið á árið eftir að hafa farið hægt af stað t.d. vegna áframhaldandi COVID-19 áhrifa og breyttum markaðsaðstæðum í kjölfar Brexit. Afkoman á innanlandssviði var sterk og naut góðs af magni í áætlunarsiglingum.
Við leitumst við að bjóða viðskiptavinum okkar uppá framúrskarandi þjónustu sem leiðandi flutningafyrirtæki í Norður Atlantshafi. Síðustu tvö til þrjú ár höfum við farið í stefnumarkandi fjárfestingar í tæknilausnum til að styðja við þjónustu til viðskiptavina okkar og erum t.d. að innleiða Microsoft Customer Engagement, ný kerfi fyrir áætlunarsiglingar og flutningsmiðlun, gámastýringarkerfi og nýtt uppgjörs og áætlunarkerfi.
Rík áhersla er lögð á sjálfbærni í rekstri Eimskips. Við höldum áfram að stíga skref í átt að notkun grænnar orku í rekstrinum okkar m.a. með fjárfestingum í rafknúnum hafnarkrönum og umhverfisvænni gámalyfturum, flutningabílum og smærri bílum. Það er ánægjulegt að sjá að nýju skipin okkar Brúarfoss og Dettifoss eru að skila minnkaðri losun pr. flutta einingu. Þrátt fyrir það erum við meðvituð um þörfina á nýjum orkugjafa fyrir skip á næstu árum til að ná markmiðum um minnkun útblásturs.
Árið 2022 fer vel af stað og er afkoman hingað til framar væntingum, bæði í áætlunarsiglingum og flutningsmiðlun og við erum bjartsýn á útlitið bæði með tilliti til magns og framlegðar. Nú er gert ráð fyrir að þær óvenjulegu aðstæður sem einkennt hafa alþjóðlega flutningamarkaði munu vara fram á seinni helming ársins.“
KYNNINGARFUNDUR 18. FEBRÚAR 2022
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. samþykkti ársreikning samstæðu Eimskips fyrir árið 2021 á stjórnarfundi þann 17. febrúar 2022. Kynningarfundur fyrir fjárfesta og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 18. febrúar kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins Sundabakka 2, 2. hæð. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig fyrir lok dags 17. febrúar. Fundurinn verður einnig rafrænn og verður honum streymt beint á fjárfestasíðu Eimskips www.eimskip.com/investors. Þar munu Vilhelm Már Þorsteinsson forstjóri og María Björk Einarsdóttir fjármálastjóri kynna ársuppgjör félagsins. Uppgjörsgögn og upptöku af fundinum verður einnig hægt að nálgast á fjárfestasíðunni.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.com .
María Björk Einarsdóttir, fjármálastjóri , sími: 774 0604, netfang: maria@eimskip.com.
TIL ATHUGUNAR FYRIR FJÁRFESTA
Eimskip vekur athygli á því að staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu kunna að vera byggðar á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu tilkynningarinnar. Eðli málsins samkvæmt fela slíkar staðhæfingar í sér óvissu. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft þau áhrif að rekstrarumhverfi félagsins og afkoma verði með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í tilkynningunni. Þessi tilkynning verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Staðhæfingar sem finna má í þessari afkomutilkynningu gilda eingöngu á því tímamarki þegar tilkynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við sem segir í fyrirvara þessum.
Viðhengi