English Icelandic
Birt: 2022-01-12 16:44:03 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.260 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 4,37%-4,42%. Tilboðum að fjárhæð 960 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,40%. Heildarstærð flokksins verður 33.500 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tuttugu tilboð að fjárhæð 4.240 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 4,60%-4,80%. Tilboðum að fjárhæð 3.200 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,69%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 m.kr. vegna verðbréfalána í tengslum við viðskiptavakt. Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 4.160 m. kr.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. janúar 2022. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.