English Icelandic
Birt: 2025-06-12 17:35:04 CEST
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Sex tilboð að fjárhæð 1.900 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 7,51%-7,56%. Tilboðum að fjárhæð 1.900 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 7.56%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 21.460 m. kr.

Fimm tilboð að fjárhæð 2.120 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 31 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,75%-3,76%. Tilboðum að fjárhæð 2.120 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,76%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 12.960 m. kr.

Uppgjörsdagur er 19. júní 2025.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.

Þessi tilkynning er birt af Landsbankanum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum. Tilkynning þessi er gerð af Hreiðari Bjarnasyni, framkvæmdastjóra fjármála hjá Landsbankanum hf., í samræmi við upplýsingaskyldu Landsbankans hf. samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.