Arion banki hf. lauk í dag útboði á nýjum sértryggðum skuldabréfaflokki ARION CBI 30 fyrir samtals 5.040 m.kr.
Í heild bárust 18 tilboð að fjárhæð 5.340 m.kr að nafnvirði í flokkinn ARION CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,65-2,89%. Tilboð að nafnvirði 5.040 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 2,85%. Bankinn gefur einnig út 960 m.kr. í flokknum vegna verðbréfalána til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 6.000 m.kr. eftir útgáfuna.
Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 5. júlí 2023.
Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:
Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171