Marel hf. birti uppgjör fyrsta ársfjórðungs eftir lokun markaða þann 7. maí 2024.
Meðfylgjandi er fjárfestakynning sem farið verður yfir á afkomufundi með markaðsaðilum í dag, miðvikudaginn 8. maí 2024 kl. 8:30. Þar munu Árni Sigurðsson forstjóri og Sebastiaan Boelen fjármálastjóri kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á fyrsta ársfjórðungi.
Athugið að fundurinn verður eingöngu rafrænn. Fundinum verður streymt beint á Zoom og upptaka af fundinum verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.