Icelandic
Birt: 2022-12-08 10:30:06 CET
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVK 53 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 2.200 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 1.980 m.kr. að nafnvirði á bilinu 3,08%-3,15%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.040 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Útistandandi fyrir útboð voru 25.863 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 26.903 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 220 m.kr. að nafnvirði á bilinu 2,58%-2,68%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,58%. Útistandandi fyrir útboð voru 22.350 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 22.470 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 13. desember 2022.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272