Icelandic
Birt: 2026-04-09 20:04:24 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Lánasjóður sveitarfélaga ohf.: Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 9. apríl 2026. Uppgjör viðskipta fer fram 15. apríl 2026.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 2.385.000.000 á bilinu 3,6% - 3,7%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.520.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,63%. Útistandandi fyrir voru ISK 45.453.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 150.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 46.973.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 1.570.000.000 á bilinu 3,58% - 3,62%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.270.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,60%. Útistandandi fyrir voru ISK 38.355.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 250.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 39.625.000.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949