Icelandic
Birt: 2026-06-25 11:16:41 CEST
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg: Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum RVK 44 1.

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokknum RVK 44 1.

Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 1.573 m.kr. að nafnvirði á kröfubilinu 3,59%-3,80%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 1.048 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 3,67%. Útistandandi fyrir útboð voru 15.395 m.kr. að nafnvirði, að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr. Heildarstærð RVK 44 1 er nú 16.443 m.kr. að nafnverði.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Fossar fjárfestingarbanki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 30. júní.

Nánari upplýsingar veitir:

Bjarki Rafn Eiríksson

skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,

netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is