English Icelandic
Birt: 2023-11-01 17:22:14 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Leiðrétting: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Leiðrétting: Fjárhæð tekinna tilboða í flokki LBANK CB 27 leiðrétt í enskri útgáfu tilkynningar

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem þrír flokkar voru boðnir til sölu.

Sex tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 9,09%-9,18%. Tilboðum að fjárhæð 1.700 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 9,15%. Heildarstærð flokksins verður 34.420 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Átta tilboð að fjárhæð 1.580 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 29 á ávöxtunarkröfu á bilinu 8,52%-8,65%. Tilboðum að fjárhæð 1.320 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,60%. Heildarstærð flokksins verður 8.260 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Tíu tilboð að fjárhæð 2.720 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,82%-3,90%. Tilboðum að fjárhæð 1.920 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,85%. Heildarstærð flokksins verður 51.160 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 8. nóvember 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með jákvæðum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.