English Icelandic
Birt: 2022-03-15 16:47:30 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Sjö tilboð að fjárhæð 820m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 5,30%-5,41%. Tilboðum að fjárhæð 500 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,35%. Heildarstærð flokksins verður 34.000 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sjö tilboð að fjárhæð 780 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,34%-5,40%. Tilboðum að fjárhæð 380 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,35%. Heildarstærð flokksins verður 4.540 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 22. mars 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.