English Icelandic
Birt: 2024-10-22 18:18:00 CEST
Icelandair Group hf.
Árshlutareikningur (Q1 og Q3)

Icelandair: Uppgjör 3. ársfjórðungs 2024

  • EBIT afkoma 11,4 milljarðar króna (83 milljónir USD) og hagnaður eftir skatta 9,5 milljarðar króna (69 milljónir USD)
  • Góður árangur í flugrekstrinum endurspeglast í 2% lækkun einingakostnaðar
  • Framúrskarandi stundvísi, upp um 5 prósentustig og skilar sér til lækkunar einingakostnaðar
  • Umbreytingarvegferð félagsins mun skila frekari kostnaðarlækkunum og tekjuaukningu
  • Einingatekjur drógust saman vegna minni eftirspurnar á markaðnum til Íslands og lækkun meðalfargjalda á N-Atlantshafsmarkaðnum
  • Sætanýting 86% í þriðja ársfjórðungi, aukning um 1,4 prósentustig milli ára
  • Fjöldi farþega var 1,7 milljónir, aukning um 9%, þar af 550 þúsund farþegar til Íslands
  • Góður árangur í leiguflugsstarfsemi, 21% EBIT hlutfall
  • Jákvæður viðsnúningur í fraktstarfsemi nam 784 milljónum króna (5,7 milljónum USD)
  • Sterk lausafjárstaða 53,6 milljarðar króna (395,7 milljónir USD)
  • Tímamót þegar Icelandair var kynnt sem fyrsta samstarfsflugfélag Southwest Airlines, til viðbótar við fjóra nýja samstarfssamninga á árinu


Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair

„Með samstilltu átaki starfsfólks náðum við að nýta sveigjanleika leiðakerfisins til að bregðast við breytingum á eftirspurn til Íslands og setja meiri þunga á markaðinn yfir Atlantshafið sem skilaði góðri sætanýtingu á þriðja ársfjórðungi. Þessi eftirspurnarbreyting hafði þó áhrif á afkomu félagsins þar sem meðalfargjöld eru lægri á þeim markaði. Hins vegar er markaðurinn til Íslands að styrkjast á ný og gerum við ráð fyrir verulegum rekstrarbata á fjórða ársfjórðungi og á næsta ári. Við héldum áfram að ná góðum árangri í flugrekstrinum með met stundvísi og bættri skilvirkni viðhaldsverkefna sem skilaði sér í lækkun einingakostnaðar þrátt fyrir verðbólgu. Þá var áframhaldandi rekstrarbati í fraktstarfsemi okkar og leiguflugið skilaði mjög góðri afkomu á fjórðungnum.

Í takt við áherslu okkar á að bæta samkeppnishæfni félagsins og þannig renna stoðum undir arðbæran vöxt og árangur félagsins til lengri tíma, hófum við umbreytingarvegferð á fyrri hluta þessa árs sem er þegar farin að skila árangri. Við erum að velta við öllum steinum og höfum sett fram aðgerðaráætlun sem mun bæta arðsemi félagsins og stuðla að því að við náum langtímamarkmiði okkar um 8% EBIT hlutfall. Markmiðið er að þessi vegferð muni skila 70 milljónum dala á ársgrundvelli í lok næsta árs og enn meira á árunum þar á eftir. Fjölmörg hagræðingarverkefni eru þegar í vinnslu og við höldum jafnframt áfram að styrkja tekjumyndun í gegnum fjölbreytta tekjustrauma, meðal annars í gegnum samstarf við önnur  flugfélög. Á þessu ári höfum við gert samstarfssamninga við fjögur flugfélög – Emirates, TAP, Air Greenland og Atlantic Airways. Þá voru það mikil tímamót þegar tilkynnt var að Icelandair yrði fyrsta samstarfsflugfélag Southwest Airlines, sem er á meðal stærstu flugfélaga Bandaríkjanna.

Grunnurinn að viðskiptamódeli Icelandair og okkar helsta samkeppnisforskot er landfræðileg lega Íslands. Leiðakerfið er kjarninn í okkar starfsemi og býður upp á mikla tengimöguleika í Evrópu og Norður-Ameríku og enn fleiri í gegnum samstarfsflugfélög okkar. Þá mun tilkoma nýrra langdrægari flugvéla inn í flotann gera okkur kleift að opna nýja spennandi markaði og þar með styðja enn frekar við framtíðarþróun Íslands sem áfangastaðar og tengimiðstöðvar í flugi.

Horfur eru góðar og gerum við ráð fyrir töluverðum afkomubata í fjórða ársfjórðungi og á árinu 2025. Með því að byggja á okkar sterka grunni ásamt áherslu á aukna skilvirkni og að styrkja samkeppnishæfni félagsins, tel ég að Icelandair sé í ákjósanlegri stöðu til að grípa tækifærin sem framundan eru og skapa virði fyrir hluthafa og samfélagið í heild.“

Vefútsending 23. október 2024

Kynning á uppgjöri 3. ársfjórðungs ársins 2024 verður í beinu streymi á https://icelandairgroup.com. Streymið hefst kl. 8:30 miðvikudaginn 23. október 2024 þar sem Bogi Nils Bogason forstjóri og Ívar S. Kristinsson framkvæmdastjóri fjármála munu fara yfir uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn verður á ensku. Kynningin verður aðgengileg að fundi loknum á heimasíðu félagsins og undir fyrirtækjafréttum á heimasíðu Nasdaq Nordic:
http://www.nasdaqomxnordic.com/news/companynews


Frettatilkynning Q3 2024.pdf
Interim Financial Statements Of Icelandair Group Hf Q3 24.pdf