English Icelandic
Birt: 2021-12-16 15:01:24 CET
Eimskipafélag Íslands hf.
Innherjaupplýsingar

Tilkynning frá Eimskip

Héraðssaksóknara hefur verið veitt heimild til húsleitar á starfsstöðvum Eimskipafélags Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf.  á grundvelli úrskurðar héraðsdóms. Embættið hefur óskað eftir afmörkuðum gögnum vegna sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss á árinu 2019 sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara 2020. Engir einstaklingar hafa réttarstöðu í málinu. Félagið vinnur nú að því að afla þeirra upplýsinga sem héraðssaksóknari hefur óskað eftir.

Eins og kom fram í tilkynningum frá félaginu þann 25.9.2020 og 30.9.2020 þá telur félagið að farið hafi verið eftir lögum og reglum í söluferlinu á skipunum. Eimskip þykir málið mjög leitt og lítur það alvarlegum augum enda leggur félagið, stjórnendur þess og starfsfólk mikla áherslu á samfélagslega ábyrgð í störfum sínum og hefur lengi hugað að umhverfismálum í sinni starfsemi.

Eimskip hefur verið upplýst um það að til rannsóknar er hvort að háttsemi félagsins geti varðað við lög númer 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerða setta á grundvelli þeirra. Félaginu er ómögulegt að leggja mat á möguleg fjárhagsleg áhrif en ákvæði laganna hafa að geyma heimildir til beitingu viðurlaga án þess að vísað sé til sérstakra fjárhæða. Eina fjárhæðin sem lögin gefa vísbendingar um er heimild Umhverfisstofnunar til að beita lögaðila stjórnvaldssektum að fjárhæð allt að 25 milljónir króna.  

Eimskip mun eftir fremsta megni leitast við að veita héraðssaksóknara allar þær upplýsingar sem um er beðið.

FREKARI UPPLÝSINGAR
Edda Rut Björnsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs, sími: 825 3399, netfang: investors@eimskip.com.