English Icelandic
Birt: 2022-05-19 17:36:34 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem tveir flokkar voru boðnir til sölu.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.560m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 6,15%-6,19%. Öllum tilboðum var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 6,19%. Heildarstærð flokksins verður 35.560 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Sjö tilboð að fjárhæð 1.520 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 27 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,99%-6,04%. Tilboðum að fjárhæð 1.020 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 6,02%. Heildarstærð flokksins verður 6.380 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 25. maí 2022.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.