Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu. Fimmtán tilboð að fjárhæð 3.260 m. kr. að nafnverði barst í flokkinn LBANK CB 25 á ávöxtunarkröfunni 3,64%-3,72%. Tilboðum að fjárhæð 2.660 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,69%. Heildarstærð flokksins verður 25.220 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 26. ágúst 2021. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A- með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.
|