Orkuveita Reykjavíkur – Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfaLokuðu útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 8. apríl 2021. Gefin voru út skuldabréf í nýjum flokki, OR180242 GB. Flokkurinn er óverðtryggður með föstum vöxtum og jöfnum afborgunum tvisvar á ári fram að lokagjalddaga þann 18. febrúar 2042. Heildartilboð í flokkinn voru samtals 5.049 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,99% - 4,65%. Tilboðum að fjárhæð 2.198 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,35%. Fossar markaðir hafa umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar veita: Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR, sími: 516-6100, netfang: ingvar.stefansson@or.is Matei Manolescu, markaðsviðskipti, Fossar markaðir, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossarmarkets.com
|