Nasdaq Iceland býður Hampiðjuna hf. velkomna á Aðalmarkaðinn
Reykjavík, 9. júní, 2023 — Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) tilkynnir að hlutabréf Hampiðjunnar (auðkenni: HAMP) verða í dag tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Félagið tilheyrir Neysluvörugeiranum (e. Consumer Discretionary) og er 11. félagið sem tekið er til viðskipta á mörkuðum Nasdaq Nordic* í ár. Félagið hefur verið skráð félag á Íslandi síðan 1993, þar af síðastliðin 17 ár á Nasdaq First North vaxtarmarkaðnum.
Hampiðjan var stofnuð árið 1934 og er leiðandi á heimsvísu í þjónustu og þróun á vörum fyrir sjávarútveg, fiskeldi og úthafsiðnað. Hampiðjan samanstendur af 51 fyrirtæki, með starfsstöðvar á 76 stöðum á 21 andssvæði, og teygir sig frá ysta odda í Alaska í vestri og til Nýja Sjálands í austri. Hjá fyrirtækinu starfa um 2.000 manns. Vöruþróun og nýsköpun eru mikilvægir þættir starfsemi Hampiðjunnar og sá kjarni sem fyrirtækið byggir á en félagið er með 41 einkaleyfi fyrir ýmsar vörutegundir. Frekari upplýsingar má nálgast á www.hampidjan.is
„Flutningurinn frá Nasdaq First North vaxtarmarkaðnum yfir á Aðalmarkaðinn er mikilvægt skref fyrir Hampiðjuna,“ sagði Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar. „Vel heppnað útboð á nýju hlutafé í síðustu viku samhliða skráningu á Aðalmarkað Nasdaq gerir okkur kleift að nýta að fullu þau samlegðartækifæri sem felast í nýlegum kaupum okkar á norska fyrirtækinu Mørenot og ná fram hagræðingu í rekstri þess. Mikil þekking á veiðarfæragerð og fiskeldi ásamt öflugri vöruþróun hefur komið okkur í fremstu röð fyrirtækja sem sinna þessum mikilvægu greinum og við viljum halda áfram á sömu braut og efla Hampiðjuna enn frekar. Við erum sannarlega ánægð að sjá að fjárfestar deila með okkur þessari framtíðarsýn og bjóðum nýja hluthafa hjartanlega velkomna í fyrirtækið.“
„Um leið og við bjóðum Hampiðjuna hjartanlega velkomna á Aðalmarkað Nasdaq Iceland fögnum við 30 ára skráningarafmæli félagsins á hlutabréfamarkaði, sagði Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq Iceland.“ Við óskum Hampiðjunni einnig til hamingju með vel heppnað hlutafjárútboð og við hlökkum til að styðja við félagið fram veginn með auknum sýnileika og aðgengi að breiðari hópi fjárfesta.“
*Aðalmarkaðir og Nasdaq First North í Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com
Nasdaq tengiliður: Kristín Jóhannsdóttir kristin.johannsdottir@nasdaq.com 868 9836
|