Sex mánaða uppgjör Garðabæjar sýnir sterka fjárhagsstöðuÁrshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins sýnir sterka fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Garðabæjar. Samkvæmt 6 mánaða uppgjöri Garðabæjar er niðurstaða samstæðureiknings A og B hluta jákvæð um 93 m.kr. Rekstrartekjur nema 14.299 m.kr., rekstrargjöld 11.930 m.kr. og afskriftir 883 m.kr. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsgjalda er 1.486 m.kr. og fjármagnsgjöld nema 1.391 m.kr. Framlegðarhlutfall er 16.6%, veltufé frá rekstri er 846 m.kr. og skuldaviðmið er 102,1%.
|