Icelandic
Birt: 2023-02-22 14:30:49 CET
SÍL hs.
Ársskýrsla

Ársreikningur SÍL hs. 2022

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SÍL hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í apríl árið 2021.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins að fjárhæð 42 þús. kr. á árinu samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2022 námu 6.322 millj. kr. og hrein eign sjóðsins nam 1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2022, efnahagi hans 31. desember 2022 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2022, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar veita Anna Kristjánsdóttir í síma 444 7461, anna.kristjansdottir@stefnir.is

Viðhengi



Arsreikningur SIL hs. 2022.pdf