English Icelandic
Birt: 2026-05-07 17:17:00 CEST
Arion banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki gefur út græn almenn skuldabréf fyrir 300 milljónir evra

Arion banki gaf í dag út almenn skuldabréf (e. senior preferred) að fjárhæð 300 milljónir evra til 3.5 ára. Skuldabréfin bera 3,625% vexti sem jafngilda 88 punkta álagi yfir millibankavöxtum í evrum.

Umtalsverð eftirspurn var eftir skuldabréfunum eða um 8x sinnum meiri en framboð. Í heild bárust tilboð frá 124 fjárfestum frá yfir 26 löndum í Evrópu og Asíu. Endanleg tilboðsbók nam rúmlega 2,4 milljörðum evra. 

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem hlotið hefur álit frá óháðum aðila, ISS Corporate.

Umsjónaraðilar (e. joint lead managers ) útgáfunnar voru BofA Securities, Deutsche Bank, J.P Morgan og Natwest

Arion banki gefur ut grn almenn skuldabref fyrir 300 milljonir evra.pdf