English Icelandic
Birt: 2023-05-25 15:30:04 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: S&P breytir horfum á lánshæfismati sértryggðra skuldabréfa Landsbankans í jákvæðar

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í dag lánshæfiseinkunn Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í A og breytir horfum úr stöðugum í jákvæðar.

Ákvörðunin kemur í kjölfar tilkynningar um breytingu á horfum lánshæfismats ríkissjóðs í jákvæðar þann 12. maí síðastliðinn.

Nánari upplýsingar má finna í tilkynningu S&P sem aðgengileg er á vef bankans, www.landsbankinn.is/lanshaefismat.