Icelandic
Birt: 2022-10-13 11:09:28 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 997 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 652 m.kr. að nafnvirði á bilinu 2,95%-3,11%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 572 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,03%. Útistandandi fyrir útboð voru 23.610 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 24.182 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 345 m.kr. að nafnvirði á bilinu 6,85%-6,94%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum samtals að nafnvirði 345 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,94%. Útistandandi fyrir útboð voru 19.505 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 19.850 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 18. október 2022.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272