Nasdaq tilkynnir um endurskoðun samsetningar OMXI10 vísitölunnar
Reykjavík, 22. júní 2022 – Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) tilkynnir niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 10 vísitölunni (Nasdaq Iceland: OMXI 10), sem tekur gildi föstudaginn, 1. júlí 2022.
Eftirfarandi félag kemur nýtt inn í vísitöluna:
Vátryggingafélag Íslands hf. (VIS)
Eftirfarandi félag fer þá úr vísitölunni:
Hagar hf. (HAGA)
Á vefsíðu Nasdaq's Global Index Watch má finna heildarlista yfir öll félög sem eru í OMX Iceland 10 vísitölunni.
OMX Iceland 10 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim tíu félögum sem mest viðskipti eru með á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland. Endurskoðun á sér stað tvisvar á ári og tekur ný samsetning vísitölunnar gildi í janúar og júlí ár hvert. Frekari upplýsingar um aðferðarfræði við val í vísitöluna og útreikning hennar má finna hér OMX Iceland 10 Index Methodology.
Um Nasdaq
Nasdaq (Nasdaq: NDAQ) er alþjóðlegt tæknifyrirtæki sem þjónar verðbréfamörkuðum og öðrum atvinnugeirum. Fjölbreytt framboð okkar af markaðsgögnum, greiningarvörum, hugbúnaði og þjónustu gerir viðskiptavinum okkar kleift að láta framtíðarsýn þeirra verða að veruleika. Til að fræðast meira um félagið, tæknilausnir og störf hjá okkur, smellið á LinkedIn, Twitter @Nasdaq eða www.nasdaq.com
Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur
Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.
Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallinn, Nasdaq Vilnius and Nasdaq Clearing are respectively brand names for the regulated markets of Nasdaq Copenhagen A/S, Nasdaq Helsinki Ltd., Nasdaq Iceland hf., Nasdaq Riga, AS, Nasdaq Stockholm AB, Nasdaq Tallinn AS, AB Nasdaq Vilnius, and Nasdaq Clearing AB. Nasdaq Nordic represents the common offering by Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland and Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic represents the common offering by Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga and Nasdaq Vilnius
FJÖLMIÐLASAMSKIPTI NASDAQ ICELAND Kristín Jóhannsdóttir Sími: 868 9836 kristin.johannsdottir@nasdaq.com
|