Icelandic
Birt: 2023-05-03 18:40:15 CEST
Lánasjóður sveitarfélaga ohf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Lánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða úr skuldabréfaútboði

Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 3. maí 2023. Uppgjör viðskipta fer fram 8. maí 2023.

Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.330.000.000 á bilinu 3,00% - 3,08%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 2.530.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Útistandandi fyrir voru ISK 13.767.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 16.297.600.000.

Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 190.000.000 á bilinu 2,97% - 2,99%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 190.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,99%. Útistandandi fyrir voru ISK 26.860.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 27.050.000.000.

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949