Birt: 2025-02-19 14:31:28 CET
SEL I hs. - Ársreikningur

Ársreikningur SEL I hs. 2024

Sérhæfði hlutdeildarsjóðurinn SEL I hs. sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf sem tekin voru til viðskipta á First North Iceland Fixed Income í nóvember árið 2024.

  • Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2024 að fjárhæð 4 USD samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á hlutdeildarskírteinum.
  • Eignir sjóðsins í árslok 2024 námu 32.701.414 USD og hrein eign sjóðsins nam 104 USD samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Deloitte ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2024, efnahag hans 31. desember 2024 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2024, í samræmi við lög um ársreikninga og lög um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. https://www.stefnir.is/kaupholl 

Nánari upplýsingar veita Róbert Vilhjálmur Ásgeirsson, robert.asgeirsson@stefnir.is og Per Matts Henje, per.henje@stefnir.is

Viðhengi


SEL I arsreikningur 31.12.2024.pdf