Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVKN 35 1 og RVK 44 1.
Heildartilboð í RVKN 35 1 voru samtals 4.905 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 8,20%-8,45%. Ákveðið var taka tilboðum, samtals að nafnvirði 4.885 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 8,40%.
Útistandandi fyrir útboð voru 33.645 m.kr. að nafnvirði, að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 960 m.kr. Heildarstærð flokksins er nú 38.530 m.kr. að nafnverði.
Heildartilboð í RVK 44 1 voru samtals 300 m.kr. að nafnvirði á kröfunni 3,89%-3,99%. Ákveðið var að afþakka öll tilboð. Heildarstærð flokksins er óbreytt 9.010 m.kr. að nafnverði að meðtöldum eigin bréfum Reykjavíkurborgar vegna viðskiptavaktar 800 m.kr.
Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 27. maí.
Nánari upplýsingar veitir:
Bjarki Rafn Eiríksson
skrifstofa fjárstýringar og innheimtu,
netfang: bjarki.rafn.eiriksson@reykjavik.is
