Birt: 2024-01-04 18:10:00 CET
Company logo
Arion banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar
Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfaflokki ARION CBI 30 fyrir samtals 5.560 m.kr.

Í heild bárust 20 tilboð að fjárhæð 6,080 m.kr að nafnvirði í flokkinn ARION CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,58 - 3,66%. Tilboð að nafnvirði 5.560 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,63%. Heildarstærð flokksins verður 16.820 m.kr. eftir útgáfuna.

Í samræmi við útboðstilkynningu bauðst eigendum flokksins ARION CB 24 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 99,0926 gegn kaupum í útboðinu. Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 740 m.kr. að nafnverði í flokknum ARION CB 24.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. janúar 2023.
Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til:


Theodórs Friðbertssonar, forstöðumanns fjárfestatengsla Arion banka, ir@arionbanki.is, s. 856 6760, eða Eiríks Dórs Jónssonar, forstöðumanns fjárstýringar, eirikur.jonsson@arionbanki.is, s. 856 7171

Viðhengi:
Arion banki hf. Niurstaa utbos sertryggra skuldabrefa.pdf https://attachment.news.eu.nasdaq.com/ac61e4d35b009dd9165923986aecc4518

Company News Subscribe European Market Activity Nasdaq Europe
© 2025, Nasdaq, Inc. All Rights Reserved.