Icelandic
Birt: 2022-09-08 11:28:05 CEST
Reykjavíkurborg
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Niðurstaða úr skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar

Reykjavíkurborg hefur lokið útboði í skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVK 53 1.

Í heildina bárust tilboð að nafnvirði 3.302 m.kr. í flokkana.

Heildartilboð í RVK 32 1 voru samtals 3.142 m.kr. að nafnvirði á bilinu 2,45% - 2,62%. Ákveðið var að taka tilboðum, samtals að nafnvirði 2.462 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,53%. Útistandandi fyrir útboð voru 21.148 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 23.610 m.kr. að nafnverði.

Heildartilboð í RVK 53 1 voru samtals 160 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfunni 1,75%-1,8%. Ákveðið var að taka öllum tilboðum samtals að nafnvirði 160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,8%. Útistandandi fyrir útboð voru 22.190 m.kr. að nafnvirði. Heildarstærð flokksins er nú 22.350 m.kr. að nafnverði.

Uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 13. september 2022.

Viðskiptavakar Reykjavíkurborgar, Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, höfðu umsjón með útboðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is        
Sími: 898-8272