English Icelandic
Birt: 2023-02-16 18:29:03 CET
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem flokkurinn LBANK CB 27 var boðinn til sölu.

Tólf tilboð að fjárhæð 1.900 m. kr.  að nafnverði bárust á ávöxtunarkröfunni 8,01-8,07%. Tilboðum að fjárhæð 1.100 m. kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 8,03%. Heildarstærð flokksins verður 19.860 m. Kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Uppgjörsdagur er 23. febrúar 2023.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.