English Icelandic
Birt: 2024-10-08 17:34:19 CEST
Landsbankinn hf.
Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Landsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem einn flokkur var boðinn til sölu.

23 tilboð að fjárhæð 10.660 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 30 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,94%-4,08%. Tilboðum að fjárhæð 9.480 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 4,00%. Heildarstærð flokksins eftir viðbótarútgáfuna verður 39.160 m. kr.

Uppgjörsdagur er 15. október 2024.

Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Lánshæfiseinkunn sértryggðra skuldabréfa Landsbankans er A+ með stöðugum horfum samkvæmt mati S&P.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 190/2023. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, Fjármögnun Landsbankans - Landsbankinn.